Kaldalón hf.: Útgáfa skuldabréfa með stækkun á skuldabréfaflokki KALD 150234
15 Mayo 2024 - 12:44PM
Kaldalón hf.: Útgáfa skuldabréfa með stækkun á skuldabréfaflokki
KALD 150234
Kaldalón hf. hefur lokið við að stækka skuldabréfaflokkinn KALD
150234, sem gefinn er út undir 30.000 milljóna króna útgáfuramma
félagsins.
Kaldalón hf. seldi 1.860 milljónir króna, í skuldabréfaflokknum
KALD 150234, á 4,10% ávöxtunarkröfu. Áður útgefið í
skuldabréfaflokknum var 3.140 milljónir króna. Heildarstærð
flokksins verður því 5.000 milljónir króna.
Skuldabréfaflokkurinn KALD 150234 er verðtryggður á föstum 4%
ársvöxtum, til 10 ára en endurgreiðsluferli afborgana og vaxta
fylgir 30 ára jafngreiðsluferli. Skuldabréfaflokkurinn er
veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi og er nú þegar
skráður til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður föstudaginn
24. maí 2024. Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til
endurfjármögnun skulda félagsins.
Landsbankinn hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna
sem og töku stækkunarinnar til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq
Iceland. Salan var framkvæmd í lokuðu útboði (e. private
placement).
Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í
tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma,
endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu
skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í
Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins;
https://kaldalon.is/fjarfestar/.
Nánari upplýsingar veita
Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf.,
sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is
Gunnar S. Tryggvason, Verðbréfamiðlun Landsbankans hf., í síma
821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is