Sveitarfélagið Árborg – Ársreikningur 2023
24 Abril 2024 - 1:40PM
Sveitarfélagið Árborg – Ársreikningur 2023
Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2023 var
lagður fram í bæjarráði og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í
dag miðvikudaginn 24.04.2024.
Rekstrarniðurstaða Sveitarfélagsins
Árborg samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var
neikvæð um 1.269 millj.kr. en samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun
fyrir árið 2023 var gert ráð fyrir 1.855 mill.kr. neikvæðri
rekstrarniðurstöðu. Uppfærð fjárhagsáætlun ársins 2023 gerði ráð
fyrir 1.693 millj.kr. neikvæðri niðurstöðu.
Tekjur ársins af A og B hluta námu
alls 17.951 millj.kr., launakostnaður 9.686 millj.kr., hækkun
lífeyrisskuldbindinga nam 658 millj.kr.. Annar rekstrarkostnaður
var 5.622 millj.kr. og nemur framlegð því 1.984 millj.kr.
Afskriftir voru 951 millj.kr.. Fjármunatekjur, fjármagnsgjöld og
tekjuskattur námu 2.302 millj.kr. og var rekstrarniðurstaða ársins
því neikvæð um 1.269 millj.kr. Veltufé frá rekstri var 1.713
millj.kr. eða 9,5% af heildartekjum A og B hluta.
Skuldahlutfall hefur lækkað á árinu
2023 og er samkvæmt reglugerð nr. 502/2012 er nú komið niður í
147,4% úr 156,6% fyrir árið 2022. Strax í upphafi árs 2023 setti
Sveitarfélagið Árborg sér markmið með það að leiðarljósi að
uppfylla að lámarki kröfur sem kveðið er á um í lögum að standast
lámarksviðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum
sveitarfélaga.
Fræðslu- og uppeldismál eru
umfangsmesti málaflokkurinn og til hans var varið 7.637 millj.kr.
eða 61,7% skatttekna sem var til samanburðar 62,2% árið 2022. Til
félagsþjónustu var veitt 2.090 millj.kr. eða 16,9% skatttekna og
eru þar með talin framlög vegna málefna fatlaðs fólks. Til íþrótta-
og frístundamála var ráðstafað um 1.164,2 millj.kr. eða 9,4%
skatttekna.
Þrátt fyrir krefjandi
rekstrarumhverfi árið 2023 styrktist rekstur Sveitarfélagsins
Árborg umtalsvert milli ára þó á sveitarfélagið enn talsvert í land
til að reksturinn verði sjálfbær. Þannig er rekstrarhalli minni en
áætlaður var þrátt fyrir að lífeyrisskuldbindingar hækki um 430
millj.kr. milli ára og fjármagnsgjöld séu um 326 millj.kr. hærri en
í áætlun. Þá er verulegt styrkleikamerki að veltufé frá rekstri
hækkaði verulega milli ára og var 1.721 millj.kr. króna árið 2023
en var 132 millj.kr. árið 2022.
Þá hefur framlegð
aukist milli ára úr 1,5% í 11,1% af tekjum árið 2023 sem og veltufé
frá rekstri hefur aukist sem er algjör lykiltala í ársreikningi og
er það svigrúm sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum
og afborgunum lána.
- Sveitarfélagið Árborg ársreikningur 2023 fyrri umræða