LEIÐRÉTTING: VÍS: Hlutafjárlækkun

Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun Vátryggingafélags Íslands hf. að nafnverði kr. 53.300.000, í kjölfar þess að á aðalfundi félagsins þann 16. mars 2023 var tillaga stjórnar samþykkt um að lækka hlutafé félagsins úr kr. 1.750.000.000 að nafnverði í kr. 1.696.700.000 að nafnverði, og að eigin hlutir félagsins að nafnverði kr. 53.300.000 verði þannig ógiltir. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin verið framkvæmd.

Einnig hefur verið óskað eftir því við Nasdaq að lækka skráð hlutafé til samræmis og mun lækkunin verða framkvæmd 2. maí 2023.

Skráð hlutafé félagsins eftir lækkunina er því að nafnverði kr. 1.696.700.000 sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði. Eftir hlutafjárlækkunina á VÍS 1.150.000 eigin hluti.

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, með tölvupósti erlat@vis.is og í síma 660-5260.

Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Mar 2024 a Abr 2024 Haga Click aquí para más Gráficas Vis Insurance.
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Abr 2023 a Abr 2024 Haga Click aquí para más Gráficas Vis Insurance.