VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS vegna aðalfundar 2023
11 Marzo 2023 - 12:28PM
VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS vegna
aðalfundar 2023
Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður
haldinn fimmtudaginn 16. mars 2023 kl. 16:00 í höfuðstöðvum
félagsins Ármúla 3, 108 Reykjavík, auk þess sem gefinn er kostur á
rafrænni þátttöku á fundinum.
Framboðsfrestur vegna stjórnar og
tilnefningarnefndar Vátryggingafélags Íslands hf. rann út þann 11.
mars 2023 kl. 16:00.
Meðfylgjandi eru upplýsingar um þá aðila sem
gefið hafa kost á sér til setu í stjórn og varastjórn annars vegar,
og tilnefningarnefnd hins vegar. Athygli er vakin á því að Stefán
Árni Auðólfsson, sem tilgreindur er í skýrslu tilnefningarnefndar
hefur dregið framboð sitt til baka.
Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr.
63. gr. a. hlutafélagalaga nr.2/1995. Þar sem fimm einstaklingar
hafa boðið sig fram til aðalstjórnar, tveir til varastjórnar og
þrír einstaklingar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd
er ljóst að sjálfkjörið er í stjórn og tilnefningarnefnd.
Önnur fundargögn tengd hluthafafundi má
nálgast á vefsíðu félagsins: https://vis.is/hluthafafundir/
Reykjavík, 11 mars 2023
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.
- Framboð til tilnefninganefndar VÍS 2023
- Framboð til stjórnar VÍS 2023
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Dic 2024 a Ene 2025
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Ene 2024 a Ene 2025
Real-Time news about Vis Insurance Ltd (London Stock Exchange): 0 recent articles
Más de Artículos de Noticias