VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar
17 Enero 2022 - 6:42AM
VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd VÍS auglýsir eftir framboðum
eða tilnefningum til stjórnar VÍS vegna aðalfundar félagsins sem
haldinn verður fimmtudaginn 17. mars 2022.
Frestur til að skila inn framboðum og
tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til
föstudagsins 4. febrúar 2022.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku
eyðublaði sem unnt er að nálgast hér og á vefsvæði
tilnefningarnefndar á heimasíðu VÍS:
https://www.vis.is/tilnefningarnefnd/. Útfylltum eyðublöðum skal
skila á netfangið: tilnefningarnefnd@vis.is.
Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt
samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðalfund. Starfsemi
tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að
skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um
þau framboð verður ekki fjallað í tillögu
tilnefningarnefndar.
Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu
samsetningu stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði.
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Nov 2024 a Dic 2024
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Dic 2023 a Dic 2024