VÍS: Kaupréttaráætlun starfsfólks
13 Octubre 2023 - 8:31AM
VÍS: Kaupréttaráætlun starfsfólks
Á aðalfundi VÍS, þann 16. mars sl., var
stjórn félagsins veitt heimild til að samþykkja
kaupréttaráætlun byggð á 10. gr. laga um tekjuskatt nr.
90/2003 og gera á grundvelli hennar kaupréttarsamninga við
starfsfólk VÍS og dótturfélaga þess. Þann 9.júní sl. var
kaupréttaráætlun útfærð af stjórn VÍS og samþykkt af skattinum þann
28. júní sl.
Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum
við starfsfólk í samræmi við samþykkta kaupréttaráætlun. Kaupréttur
samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinni starfsmanna VÍS og
dótturfélaga þess og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni
starfsfólks við langtímamarkmið félagsins og dótturfélaga þess.
Samkvæmt áætluninni öðlast kaupréttarhafi rétt
til að kaupa hlut í félaginu fyrir að hámarki 1.500.000 krónur einu
sinni að 12 mánuðum liðnum frá undirritun samningsins. Kaupverð er
vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu
viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 13. október, eða 15,25
krónur á hvern hlut.
Alls gerðu 239 starfsmenn samstæðunnar
kaupréttarsamning sem ná til allt að 20.973.700 hluta á ári miðað
við 100% nýtingu kauprétta.
Nánari upplýsingar um framkvæmd má finna í
meðfylgjandi skjölum.
- Kaupréttaráætlun_VÍS_undirrituð
- Kaupréttarsamningur VÍS 2023
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Dic 2024 a Ene 2025
Vis Insurance (LSE:0QDY)
Gráfica de Acción Histórica
De Ene 2024 a Ene 2025
Real-Time news about Vis Insurance Ltd (London Stock Exchange): 0 recent articles
Más de Artículos de Noticias